Aftur á yfirlitssíðu

Einbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 1175
€. 2.500.000

Glæsilegar lúxusvillur í Sierra Cortina

Kr371.700.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 448 fm
Fjöldi svefnherbergja 4 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 4 baðherbergi
44 km
4 km
2 km
3 km

Markaðsvirði eignar

Kr371.700.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynna:

Þessi lúxusvilla er í byggingu í Sierra Cortina í Finestrat. Húsið verður byggt á mjög stóri lóð með fimm öðrum einbýlishúsum sem er verið að byggja í sama kjarna. Staðsett er í aðeins nokkurra mínútna fjarlægð frá tveimur golfvöllum, verslunarmiðstöð og ströndum Playa Poniente og La Cala. Húsið snýr i  suðurátt og býður upp stórbrotið sjávarútsýni. Þrjár hæðir eru í einbýlishúsinu. Á aðalíbúðarhæðinni er stór stofa og borðstofa með opnu og fullbúnu eldhúsi. Beint út úr stofu og eldhúsi er gegnið út á stóra verönd sem er að hluta til yfirbyggð og þar úti er glæsileg infinity sundlaug og nóg pláss fyrir frábærar samverustundir. Á fyrstu hæð eru þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Aðalsvefnherbergið er með en-suite baðherbergi og fataskápa herbergi, hin tvö svefnherbergin deila öðru baðherberginu. Öll herbergin þrjú hafa aðgang að stórum svölum  með sjávarútsýni. Þaksvalirnar sjálfar eru yfir 100 fermetrar og að hluta til  yfirbyggðar tilvalið til að stunda íþróttir á og/eða vera með útieldhús, möguleikarnir fyrir þessar glæsilegu þaksvalir eru óendanlegur. Á neðstu hæð einbýlishússins er fjórða svefnherbergið með en-suite baðherbergi, stórt þvottaherbergi, gestasalerni, bílskúr fyrir tvo bíla og 55 fermetra rými sem gæti mögulega verið breytt í líkamsrækt,bíóherbergi, heilsulind eða leikherbergi. Húsið er búið gólfhita, loftkælingu með Airzone kerfi, loftræstikerfi með varma endurheimtu og er með foruppsetningu fyrir lyftu sem tengir allar hæðir húsins

Nánar um svæðið:

Finestrat er við Benidorm sem er einn af vinsælli ferðamannastöðum Spánar, staðsettur í Valencia-héraði og telst höfuðborg Costa Blanca. Í dag er bærinn byggður hágæða hótelum og skýjakljúfum sem taka á móti jafn mörgum ferðamönnum erlendis frá og Spáni. Flestar verslanir og veitingahús eru í gamla bænum, en sá hluti var áður virki. Þröngar göturnar búa yfir miklum sjarma og mynda eins konar völundarhús stræta, gatna og innskota sem geyma fjöldann allan af áhugaverðum litlum búðum auk veitingahúsa og bara sem bjóða upp á gómsæta smárétti eða Tapas. Í Benidorm má finna margar af hæstu byggingum Spánar og fasteignaúrvalið er afar fjölbreytt. Hvort sem um fjárfestingu eða afslöppun er að ræða er öruggt að Finestrat tekur sérstaklega vel á móti þeim sem kaupa fasteign á staðnum.

 

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og [email protected]

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.