Markaðsvirði eignar
Kr137.400.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Glæsileg villa alveg við ströndina í Cabo Roig og stutt er að nálgast næstu þjónustu og veitingastaði, Cabo Roig göngugatan er aðeins í 5 mínútna aksturfjarlægð frá, þar er hægt að finna allskyns veitingastaði og skemmtun. Einnig er stóra verslunarmiðstöðin Zenia Boulevard aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð frá.
Þessi glæsilega villa snýr í suðurátt og er 260 m2 og situr á lóð sem er 1,034 m2. Það er stór og mikill garður í kringum allt húsið, með sjálfvökvandi kerfi fyrir grasið, pálmatrjám og ávaxtatrjám og með upphitaðri sundlaug og notalegu útisvæði þar sem hægt er að njóta góðra stunda.
Húsið er á tveim hæðum og á jarðhæðinni ertu með stóra stofu með arineldinn, flott eldhús, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Á annarri hæð eru fjögur svefnherbergi og tvö baðherbergi, og eitt þeirra er með nuddpott. Einnig ertu með flottar svalir með frábæru sjávarútsýni.