Aftur á yfirlitssíðu

Einbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 1309
€. 549.900

Glæsileg villa í Benijófar

Kr82.700.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 140 fm
Fjöldi svefnherbergja 3 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 3 baðherbergi
29 km
8 km
-
3 km

Markaðsvirði eignar

Kr82.700.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir: Glesileg villa í Benijófar þar sem stutt er að nálgast næstu hversdags þjónustu, veitingastaði og matvörubúðir o.s.f.v. Einnig er Habaneras verslunarmiðstöðin, Guardamar ströndin og Aquapark í Rojales í 10 mínútna akstursfjarlægð frá.

Um er að ræða 140 m2 villa á einni hæð sem situr á 400 m2 lóð og er þar af leiðandi með stóran garð með flottu útisvæði, einkasundlaug og bílastæði á lóðinni.

Gengið er inn í stórt rými þar sem er opið eldhúsi, borðstofa og stofa með stórri gler rennihurð sem opnast út á verönd. Hjá stofunni er gangur þar sem við finnum eitt fjölskyldu baðherbergi, tvö svefnherbergi sem deila öðru baðherbergi og hjónaherbergi með einkabaðherbergi og er með stóran glugga sem er beint yfir sundlauginni.

Verð: 549.900€.

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og [email protected]

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.