Markaðsvirði eignar
Kr33.400.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Glæsileg raðhús í byggingu í Torre de La Horadada sem verða tilbúin til afhendingar september 2022. Stutt er í flesta þjónustu og veitingastaði. Aðeins eru um 5 mínútur að keyra á vinsæla Cabo Roig strippið sem er þekkt fyrir sína mörgu og fjölbreyttu veitingastaði. Einnig eru ca. 10 mínútur að keyra í stóru verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hver eign er með annaðhvort 2 eða 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi, góða verönd fyrir framan og solarium eða þaksvalir ofan á. Eldhúsið er nútímalegt og með meira en nóg af skápaplássi.
Svefnherbergin eru með innbyggða fataskápa og það er master svíta með einkabaðherbergi.
Eigendur hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug og heitum potti, gym og sauna.
Verð frá 239.000€.