Markaðsvirði eignar
Kr26.900.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Glæsileg 2 svefnherbergja íbúð í eftirsóttum íbúðarkjarna, "Terrazas de Campoamor". Kjarninn er vel staðsettur rétt ofan við AP-7 með útsýni yfir Cabo Roig og því stutt frá strönd og verslunarmiðstöðinni Zenia Boulevard svo eitthvað sé nefnt. Stutt rölt í aðra þjónustu og veitingastaði. Kjarninn sem er byggður af TM er afhentur nýr 2017 og er einkar glæsilegur og vel umhirtur.
Íbúðin er á fyrstu hæð í lyftuhúsi og er afar vel skipulögð. Gengið er inn í litla forstofu með skápum. Á vinstri hönd er gott opið eldhús með miklu skápaplássi. Stofan er rúmgóð með aðgengi út á 17 fm svalir sem snúa í suður. Tvö svefnherbergi og baðherbergi á milli herbergja sem hægt er að loka á milli. Húsgögn fylgja að hluta. Stæði fylgir í lokuðum bílakjallara.
Sameiginlegur sundlaugargarður er gróin með grænum svæðum, leiksvæðum fyrir börn, útisturtum og tveimur sundlaugum.
Verð 179.900 evrur + 12-14% kostnaður (vsk & skjala og umsýslugjöld)
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.