Markaðsvirði eignar
Kr48.100.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Glæsilegur nýr kjarni í byggingu. Einstök staðsetning og stutt er í flest alla þjónustu. Einnig eru aðeins nokkrar mínútur að keyra í stóru verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard og um 10 mínútur að labba á ströndina í Playa Flamenca. Afhending fyrstu íbúða verður lok árs 2022, framkvæmdir eru ekki hafnar en hægt er að forskrá sig á íbúðir.
Í kjarnanum verður hægt að finna allt mögulegt, það verða samtals 5 blokkir í garðinum ásamt 2 sameiginlegum sundlaugum og flottum sólbaðssvæðum. Það verður einnig sauna og líkamsrækt. Í garðinum verður líka barna leikvöllur, petanca völlur og frábært grænt svæði þar sem hægt er að njóta sín.
Hver íbúð er með 2/3 svefnherbergi og 2 baðherbergi ásamt frábærri verönd þar sem er hægt að ganga beint út í garð. Eldhúsið er nútímalegt og er opið til stofu/borðstofu og frá stofu er gengið út á 30 m2 verönd. Svefnherbergin eru bæði með stærðar innbyggða fataskápa og annað svefnherbergið er master svíta og er því með einkabaðherbergi.
Með hverri íbúð fylgir með bílastæði í kjallara og geymsla.
Verð frá 330.950€.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is