Markaðsvirði eignar
Kr53.000.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Glæsilegt hús í Villamartin sem var byggt árið 1990. Staðsett stutt frá flest allri þjónustu og kjörnum sem bjóða upp á marga og spennandi veitingastaði. Einnig eru aðeins nokkrar mínútur að keyra í vinsælu verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Húsið er byggt á 480 m2 lóð og er á tveimur hæðum með 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi. Á lóðinni er bílskúr, geymsla og stór einkasundlaug og finnsk sauna. Á fyrstu hæð er opið á milli eldhúss til stofu og borðstofu. Á efri hæð eru 25 m2 svalir með útsýni yfir garðinn og þaðan er stigi sem leiðir upp á þaksvalir.
Verð 379.000€. Innifalið í verði eru húsgögn að hluta og raftæki í eldhús.