Markaðsvirði eignar
Kr43.500.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Flott íbúð á efri hæð með einka þaksvölum staðsett í nýjum kjarna í Los Balcones, stutt frá allri þjónustu og veitingastöðum á svæðinu. Þú ert í ca. 10-15 mín akstursfjarlægð frá fjölmörgum golfvöllum, fallegu ströndum á Orihuela Costa svæðinu og Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni.
Íbúðin er 70 m2 og samanstendur af 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi ásamt 57 m2 einka þaksvölum þar sem þú hefur útsýni yfir saltvötnin í Torrevieja og miðjarðarhafinu. Íbúðin er hönnuð með hágæða nútímalegum stíl og hefur þá eldhús og stofu í opnu alrými og frá stofunni er aðgengi út á svalir með útsýni yfir sundlaugina. Frá svölunum er stigi upp á þaksvalirnar.
Íbúðin veður afhent innréttuð með húsgögnum, með loftkælingu í öllum herbergjum og gólfhita á baðherbergjum. Það fylgir einnig einkabílastæði og geymsla í bílakjallara
Verð 294.000€
Þessi eign er tilbúin til að flytja inn (Key Ready)
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.