Markaðsvirði eignar
Kr36.300.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Fjórði áfangi þessara glæsilegu eigna í Roldán í Murcia er kominn í sölu. Stutt er í alla þjónustu og veitingastaði í Roldán og fjölmargir golfvellir liggja í aðeins nokkurra mínútna akstursfjarlægð. Strendur Mar Menor eru einnig skammt undan, eða um 20 mínútna akstur.
Um er að ræða eignir á einni hæð með ýmist 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum ásamt góðri verönd/garði með einkasundlaug. Einnig eru stórar þaksvalir og bílastæði er innan lóðar. Eldhúsið er opið til stofu og borðstofu og þar eru stórar glerhurðir þar sem er gengið út á veröndina. Svefnherbergin eru bæði með innbyggða fataskápa en annað herbergið er master svíta og því með einka baðherbergi.
Innifalið í verði eru raftæki í eldhús og ljósapakki sem og útieldhús og pergola á sólarþaki.
Einstaklega glæsilegar eignir á góðu verði.
Verð frá 249.950€.