Markaðsvirði eignar
Kr68.500.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Flott villa í Los Altos staðsett á frábærum stað þar sem stutt er að nálgast næstu þjónustu og veitingastaði. Einnig er stóra verslunarmiðstöðin Zenia Boulevard í um 5 mínútna akstursfjarlægð frá.
Þetta flotta einbýli er 173 m2 og er á þrem hæðum með stórum 50 m2 þaksvölum. Það eru 4 svefnherbergi og tvö þeirra eru með sér baðherbergjum og fataherbergjum, og hafa þau bæði aðgengi út á svalir. Það eru 3 baðherbergi í húsinu, tvær stórar og rúmgóðar stofur, ein stofa á aðalhæðinni og hin í kjallaranum, og flott og nútímalegt eldhús. Frá stofunni er aðgengi út á veröndina þar sem er flott útisvæði/grillsvæði og flott einkasundlaug.