Markaðsvirði eignar
Kr73.900.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Íbúð á þriðju hæð í glæsilegum kjarna á besta stað í Cabo Roig nálægt ströndinni og göngugötunni þar sem flest hversdags þjónusta og veitingastaðir er að finna. Einnig er kjarninn staðsettur 5 mínútum frá vinsælu verslunarmiðstöðinni Zenia Boulevard.
Um er að ræða 95 m2 íbúð á þriðju hæð með þremur svefnherbergjum (eitt þeirra er en-suite með einkabaðherbergi) og tveimur baðherbergjum sem koma bæði með gólfhita. Eldhúsið, borðstofan og stofan eru sameinuð í rúmgóðu rými með aðgengi út á svalir sem eru með útsýni yfir kjarnan. Þvottahúsið er hjá eldhúsinu.
Kjarnin kemur með flottri sameiginlegri sundlaug í miðju kjarnans, einnig er upphituð innilaug með saunu og líkamsræktarsal. Það kemur einnig einkabílastæði og geymsla í lokuðum bílakjallara.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is