Markaðsvirði eignar
Kr62.900.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Glæsilegt einbýlishús á góðum stað í Villamartin þar sem stutt er að komast í vinsælu verslunarmiðstöðina Zenia Boulevard og aðra hversdags þjónustu og veitingastaði. Það er einnig ekki langt að fara til að nálgast næstu strendur og golfvelli á svæðinu.
Þessi 210 m2 eign er á tveimur hæðum og er með 5 svefnherbergi og 5 baðherbergi ásamt tveimur setustofum á sitthvorri hæðinni, opnu fullbúnu eldhúsi með granít borðplötum og eldhúseyju.
Það er loftkæling í öllum herbergjum húsins ásamt viðareldavél sem mun hita allt húsið.
Það er flott lóð í kringum húsið með bílastæði fyrir 3 bíla, upphituð einkasundlaug og fullbúinn sundlaugabar/eldhús.
Húsið er einnig með CCTV um allan garðinn.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is