Markaðsvirði eignar
Kr32.700.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Fallegt, nýuppgert og vel staðsett parhús, á 2.hæðum í strandhverfinu Campoamor. Mjög fjölskylduvænn og öruggur staður þar sem mikið er af grænum svæðum og gönguleiðum einnig er stutt rölt að Campoamor ströndinni.
Íbúðahlutinn í húsinu er á 2 hæðum en fyrir framan húsið er einkagarður með flísalagðri verönd og sérgarður með útihúsgögnum ásamt einkasundlaug. Á jarðhæð hússins er rúmgóð stofa með svefnsófa ásamt borðstofu. Sér eldhús með öllum áhöldum og tækjum og lítið baðherbergi. Út frá eldhúsinu er unnt að ganga út á bakverönd þar sem þvottavélin er. Á 2.hæð er eitt baðherbergi ásamt svefnherbergjunum með tveimur hjónarúmum og tveimur stökum rúmum. Á þessari hæð er líka baðherbergi. Gengið er út á svalir frá aðalsvefnherberginu. Loftkæling í herbergjum og stofu.
Allt umhverfið er mjög fallegt og er þetta hverfi mjög vinsælt á meðal ferðamanna þar sem allt er til alls á svæðinu og mjög stutt rölt í alla þjónustu, verslun ofl. Ekki þörf á að vera á bíl. Um 20 min akstur í miðbæ Torrevieja og um 5 min akstur eða 20 min rölt í risa verslunarmiðstöðina Zenia Boulevard.