Markaðsvirði eignar
Kr99.200.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Falleg 3 svefnherbergja eign í San Miguel de Salinas með frábæru útsýni alveg niður að miðjarðarhafinu. Stutt er í veitingastaði og almenna þjónustu eins og matvöruverslanir, apótek og annað í San Miguel.
Það eru fjölmargir golfvellir staðsettir á svæðinu og það tekur um 15 mínútur að keyra niður að Orihuela Costa þar sem þú hefur margar fallegar strendur, Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina og fleira.
Um er að ræða eign sem situr á 389 m2 lóð og er 144 m2 á tveimur hæðum með 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi.
Á jarðhæðinni eru 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi ásamt flottu nútímalegu eldhúsi sem er opið til stofu. Frá stofunni er gengið út á verönd með einkasundlaug. Efri hæðin samanstendur af hjónaherberginu sem er en-suite og er þar af leiðandi með einkabaðherbergi og það eru stórar svalir sem eru með einstakt útsýni yfir grænu svæðin í kring og alveg niður að miðjarðarhafinu.
Verð 660.000 €. og það fylgir loftkæling í öllu húsinu ásamt eldhús raftækjum (white goods), lýsing og gardínur.
Tilbúin til afhendingar (Key Ready)
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Hinn dæmigerði spænski bær er San Miguel de Salinas. Hann er staðsettur á hæsta punkti sveitar sinnar við Costa Blanca suður. Bærinn nýtur útsýnis yfir Torrevieja-saltvötnin og ótal sítrónu- og appelsínu akra í grenndinni sem meðal annars gerir hann ákjósanlegan jafnt til fastrar búsetu sem og styttri dvalar. Helsti iðnaður bæjarbúa er þjónusta og landbúnaður svo sem sítrónurækt, melónu- og ólífurækt. Bærinn býr yfir sjarma Miðjarðarhafsþorpsins. Þar má njóta viku markaðarins, sækja hellana í bænum heim eða taka þátt í hátíðum sem haldnar eru reglulega. Dýrlingadagur San Miguel er til dæmis haldinn hátíðlegur ár hvert og hefjast hátíðarhöld jafnan viku fyrir dýrlingadaginn sjálfan sem er 29. september. Matarmenning bæjarbúa einkennist af hinum hefðbundna næringarríka sveitamat „gazpacho manchego“ – girnilegur réttur unnin úr tómötum, sérstöku brauði og grænmeti ásamt kanínukjöti, hrísgrjónum og soði. Allt þetta og margt fleira gerir bæinn að einum af uppáhaldsáfangastöðum þeirra sem eru að leita að heimili í sólinni eða vilja komast í frí við Miðjarðarhafsströndina. Öll þjónusta er innan seilingar í þessu sjarmerandi litla bæ.