Markaðsvirði eignar
Kr86.600.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Einstakt heimili í gamalli höll með mörgum vel varðveittum frumlegum smáatriðum, staðsett við hljóðláta og friðsæla götu í hjarta gamla bæjarins, "Casco Antiguo" í Palma Mallorca. Frá götunni er gengið inn um stóra timburhurð sem leiðir inn í íbúðahúsnæðið. Íbúðinn sjálf er staðsett upp nokkur þrep til vinstri. Hún hefur 2 svefnherbergi og 1 baðherbergi. Næði, glæsileiki og mikill karakter túlkar þessa íbúð. Viðarbjálkar, fallegt viðargólf og meira enn 3 metra lofthæð. Íbúðin fór í góða endurbætingu fyrir um 5 árum, þar sem að lagt var bæði nýjar lagnir og rafmagn. Opið aðlaðandi eldhús með hvítum varningi í ryðfríu stáli. Við hliðina á eldhúsinu er rúmgótt þvottahús/búr. Opið plan á milli eldhússins og stofunar. Í stofu loftinu er falin LED lýsing sem rammar herbergið. Stóru gluggarnir gefa íbúðinni bæði náttúrulega birtu og tilfinningu um að vera stærri en hún er (rúðurnar eru með tvöföldu gleri). Rúmgott hjónaherbergi er staðsett við hliðina á baðherberginu og hefur innbyggðan fataskáp. Einnig er auka svefnherbergi. Rafmagnsofnar eru til staðar í íbúðinni. Húsnæðið hefur sameiginlega þakverönd og þaðan er útsýni yfir fallegu húsþökin í gamla bænum. Fullkominn staður til að njóta sólarinnar eða grillpartý. Húsfélagsgjaldið er um 20€ p/mán.