Markaðsvirði eignar
Kr174.400.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Glæsilegt einbýlishús sem er staðsett í flottu hverfi í Albir Hills norður af Alicante en Albír er lítill, fallegur strandbær staðsettur um 60 km frá Alicante. Það tekur um 5 mínútur að ganga niður í glæsilegan miðbæ Albir og á ströndina sem er aldeilis glæsileg og margrómuð fyrir öll sín þægindi.
Lóðin er 755 fm sem er umkringd góðri girðingu og aðgengið inn á lóðina í gegnum stórt rafmagnshlið. Glæsilegur upplýstur garður ásamt upphitaðri flottri sundlaug, útieldhúsi vel útbúnu, flottu útisvæði og er garðurinn með sjálfvökvunarkerfi.
Húsið sjálft er 240 fm á tveimur hæðum með þremur rúmgóðum svefnherbergjum og þremur baðherbergjum ásamt rúmgóðum bílskúr
Á jarðhæðinni er falleg stofa með 6 metra lofthæð og rafmagns arin, opið rými inn í glæsilegt fullútbúið eldhús. Einnig er þvottahús með þvottavél og þurrkara á jarðhæðinni og eitt gesta svefnherbergi með einkabaðherbergi.
Á efri hæð eru tvö stór svefnherbergi bæði með sér baðherbergi. Hjónaherbergið er einnig með flottu gufubaði og er aðgengi út á svalir með frábæru útsýni yfir Albir og Miðjarðarhafið, öll herbergir eru með góðum skápum.
Jarðhæðin og baðherbergin á efri hæðinni eru með gólfhita.
Öll húsgögn fylgja með fyrir utan nokkra persónulega muni eins og gerist og gengur í svona viðskiptum.
Þessi eign er fyrir vandláta sem staðsett er á frábærum stað á Costa Blanca ströndinni norður af Alicante borg
Allar nánari upplýsingar um þessa glæsilegu eign eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili á Íslandi og á Spáni og í síma 5585858 - Kristinn - 8200762 og info@spanarheimili.is