Aftur á yfirlitssíðu

Einbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0215
€. 380.000

Einnar hæðar einbýli með stórum bílskúr – Villa Martin/La Zenia

Kr56.300.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 125 fm
Fjöldi svefnherbergja 3 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 2 baðherbergi
44 km
2 km
2 km
2 km

Markaðsvirði eignar

Kr56.300.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir;
Stórglæsilega hönnuð einnar hæðar einbýlishús sem eru staðsett í Los Dolses hverfinu neðarlega í Villa Martin.  Um er að ræða 10 hús sem verða tilbúin til afhendingu haustið 2024 en í 6 húsanna er gert ráð fyrir um ca 120 fm bílskúrs- eða fjölskyldurými sem er innangengt frá aðalíbúðarrýminu uppi. 4 húsanna eru því ekki með bílskúr undir húsinu en hægt að útbúa þó á lóðinni.

Aðalíbúðarrýmið er um 125 fm að stærð og skiptist í 3 svefnherb. og 2 baðherb en útgengt er frá öllum herbergjunum út á veröndina. Stofan og eldhúsrýmið er með aukinni lofthæð en frá stofunni er hægt að ganga bæði út á veröndina þar sem sundlaugin er staðsett  svo út á rúmgóðar svalir með útsýni yfir akra og svæði sem ekki verður byggt á. Einnig sést vel til sjávar frá þakvsvölunum en hvert hús hefur möguleika á um 66 fm þaksvalir.

 

Frá íbúðarrýminu er innangengt niður í bílskúrs- eða fjölskyldurýmið en þar verður 2ja bila bílskúr sem keyrt er inn í neðan frá. Einnig er hægt að fá þetta rými innrettað með aukasvefnherb (4ja svefnherbergið) eða útbúa studióbúð með sérinngangi. Þetta rými í kjallaranum (ekki niðurgrafið nema að hluta) býður upp á gífurlega mikla möguleika í ljósi þess að lofthæðin er um 5 - 6 metrar (fer eftir húsum og legu lóðar)

 

Byggingaraðilinn býður kaupendnum upp á klæðskerasaumaða þjónustu sem þýðir að hægt er að klæðskerasauma eignina eftir sínun óskum og þörfum en nefna má efnisval - golfhiti í alla eignina - auka svefnherb eða studioíbuð í kjallara - sólarpanela  ofl ofl.

 

Stærð lóðar undir hvert hús er mismunandi eða frá 350 til 490 fm.
Lóðin verður afhent fullbúin með flísalagðri verönd svo og sundlaug sem er 3x7 m að stærð.

 

Frábær staðsetning þar sem stutt rölt er í alla þjónustu og um 15 - 20 min rölt í Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina.

 

Verð eign er frá 380 þ evrur og upp í 450 þ. evrur eða allt eftir stærð lóðar.

 

Kynningartilboð til 1. apríl 2023;
Inneignarávísun í húsgagnaverslanir upp á 5.000 evrur

 

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.