Markaðsvirði eignar
Kr46.000.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Glæsilegt einbýli á einni hæð með sólarþaki tilbúið til afhendingar. Staðsett í Sucina sem er í Murcia og er aðeins 15 mínútur að keyra á ströndina. Eignin er staðsett á 392 m2 horn lóð og hefur því stóran garð með einkasundlaug, grill svæði og afslöppunarsvæði. Einnig er bílastæði inni á lóðinni.
AÐEINS EIN EIGN EFTIR OG ER KEY READY
Inni er stórt og nútímalegt eldhús með stærðar gluggum sem líta út á veröndina. Frá eldhúsi og borðstofu er síðan opið til stofu og þar eru einnig stærðar gluggar sem gera þér kleift að fá sólina alla daga og hita upp eignina á veturna. Í húsinu eru þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi og þar á meðal er ein hjónasvíta með sér baðherbergi. Öll svefnherbergin eru yfir 10m2 og eru með fína og rúmgóða fataskápa.
Á einbýlinu er líka 70m2 sólarþak og er það aðgengilegt frá garðinum.
Þessi eign er sú síðasta sem selst af 10 og munu fylgja með öll húsgögn, úti og inni ljós, öll raftæki í eldhús og loftkæling.
Verð 299.950€.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is