Markaðsvirði eignar
Kr27.700.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Frábærlega staðsett efri sérhæð í Punta Prima stutt frá allri þjónustu. Rúmgóð og björt íbúð sem samanstendur af 2 svefnherbergjum (1 master með en-suite) og 1 sameiginlegt baðherbergi. Opið rými á milli stofu - borðstofu og eldhús með smá bar eyju og góðu geymsluplássi. 2 útgönguleiðir eru út á fínar suðursvalir þar sem sólinn skín allan daginn. Á þessum svölum er lokuð geymsla með þvottavél. Frá þessum svölum er gengið upp á stórt sólarþak þar sem hægt er að njóta sólarinnar allan daginn í kring. Gott útsýni er þaðan yfir nánasta nágrenni, yfir íbúðakjarnan og sameiginlega sundlaugasvæðið. Í kjarnanum er leiksvæði fyrir börn, úti GYM, úti sundlaug og inni SPA aðstaða, þar sem má finna upphitaða sundlaug, gufubað og WC & sturtu aðstöðu. Gólfhiti er inná baðherbergjum og stofu, einnig er loftkæling til staðar. Einnig fylgir bílskýli í læstum bílakjallara.