Markaðsvirði eignar
Kr32.600.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Mjög flotta efri hæð með verönd á jarðhæð, góðum svölum og sólarþaki. Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi þar af annað innangengt úr hjónaherberginu. Gólfhiti á baðherbergjum og stofu. Flugnanet fyrir gluggum. Eignin er vel búin húsgögnum ásamt góðum útihúsgögnum sem fylgja með í kaupum þessum fyrir utan einhverja persónulega muni.
Á jarðhæð er geymsla undir stiganum. Sólarþakið er sælureitur þar sem til staðar er útieldhús með vaski, skápum þar sem er ísskápur og fl. Pergula sem hægt er að draga yfir og fá skugga. Útisturta til að kæla sig á heitum sumardögum. Einnig er markisa á svölunum.
Vel viðhaldinn sameiginlegur garður með tveimur sundlaugum, önnur upphituð.
Bílastæði í bílakjallara fylgir.
Hér er um að ræða mjög góða eign á flottum stað í Cabo Roig.
Allar nánari upplýsingar gefnar á skrifstofu Spánarheimilis og við getum sýnt þessa eign samdægurs ef óskað er eftir því.
5585858 og info@spanarheimili.is