Markaðsvirði eignar
Kr72.800.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Ný raðhús sem eru staðsett í Torre de la Horadada sem er strandbær 10 mínútur sunnan við Orihuela Costa svæðið. Hægt er að finna allar nauðsynlegar þjónustur á svæðinu eins og veitingastaði, kaffihús, matvörubúðir og svo er stutt að fara til að komast í fleiri þjónustur eins og Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina sem er aðeins 15 mínútna keyrslu frá.
Þetta eru eignir sem snúa í suðaustur átt og eru 102 m2 með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Það eru verandir bæði að framan, með pláss fyrir bíl og að aftan eignina ásamt 34 m2 þaksvalir með einkasundlaug og þar er hægt er að njóta sólarinnar og góðrar stundar.
Þessat eignir eru tilbúnar til afhendingar
Verð frá 489,900€ - 509,900€
Nánar um svæðið:
Torre de la Horadada liggur við ströndina, nálægt bænum Pilar de Horadada.
Pilar de la Horadada er staðsett 3 kílómetra inn í landið frá ströndinni við El Mojon að telja. Dvalarstaðurinn er í um það bil 25 mínútna akstursfjarlægð norður af Murcia San Javier flugvellinum og um það bil einnar klukkustundar aksturs suður af flugvellinum í Alicante. Pilar de la Horadada er fullkomlega staðsett nálægt öruggum sandströndum Mar Menor. Svæðið er að mestu leyti landbúnaðarsvæði; umkringt markaðsgörðum, aldingarði, sítruslundum og sveitabæjum. Hann er syðsti bærinn á Costa Blanca og þar hefur þar átt sér stað mikil uppbygging á umliðnum árum. Í bænum er mikið og fjölbreytt úrval íbúða við sjávarsíðuna en þar er einnig að finna áhugaverð, nýbyggð raðhús og einbýli sem fullyrða má að séu verðlagt á afar sanngjarnan máta.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og [email protected]