Aftur á yfirlitssíðu

Einbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0079
€. 199.000

Bohem sveitahús með miklum möguleikum í La Aparecida

Kr29.900.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 250 fm
Fjöldi svefnherbergja 4 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 3 baðherbergi
46 km
30 km
2 km
24 km

Markaðsvirði eignar

Kr29.900.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:  ***Skipti á eign á Íslandi möguleiki***
Sveitafinca með séríbúð í La Aparecida, byggð árið 1958 í hollum á stóru landi, umkringd sítrónu og appelsínutrjám. Aðalrýmið er á 2 hæðum, gengið er beint inní borðstofu þar sem er fallegur viðar -arinn, þar til hægri er rúmgóð stofa (einnig með útgengi út á hliðarveröndina) og sitthvoru meginn við stofuna eru vígleg svefnherbergi. Á þessari hæð er einnig 1 baðherbergi og stórt spænskt eldhús, með útgengi út í patioið að aftanverðu. Á efri hæð er sameiginlegt rými, tilvalið fyrir setustofu, yoga aðstöðu eða bara hvað sem er. Sitthvorumeginn við það rými er 1 svefnherbergi og 1 baðherbergi, innaf baðherberginu er geymslu rými, notuð sem prjóna aðstaða eins og er. Og fínar þaksvalir með frábæru útsýni yfir sveit og fjöll. Sér íbúðin er hálfkláruð, það sem er nú þegar tilbúið er eldhús, borðstofa/stofa og baðherbergi. 2 rými eru ókláruð, hugsað fyrir 2 rúmgóð svefnherbergi. Rafmagn nú þegar til staðar. Á lóðinni er einnig aðskilinn bílskúr og innaf honum stór geymsla. 2.500fm stórt land fylgir eigninni, nóg pláss til þess að setja upp einkasundlaug. Veröndinn í kringum eigninni er fallega flísalögð allan hringinn. Eigendur voru byrjuð á úti grill/eldhús aðstöðu á fallegu flísalögðu veröndinni sem snýr í suður. Eins og hefur komið fram, þá eru frábærir möguleikar sem fylgja þessari eign. Tilvalið fyrir fólk sem vill hefja smá rekstur eins og Bed & Breakfast. Þrátt fyrir að vera staðsett í sveit, er stutt í alla helstu þjónustu í nokkura mínutna akstursfjarlægð, t.d. Orihuela borg aðeins 5km frá og stutt er í Murcia borg. Góður göngutúr í gegnum fallegu sveitina leiðir í næsta bæ við, La Aparecida. Ásett verð 199.000€

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.