Markaðsvirði eignar
Kr54.000.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Eign með allt á einni hæð í Los Dolses. Staðsett rétt við Villamartin, Los Dolses er fullkomin staður til þess að vera á. Stutt er í flest alla þjónustu og aðeins um 5 mínútur að labba í stóru verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard. Einnig er stutt að fara á næsta verslunarkjarna þar sem er að finna mikið af fjölbreyttum veitingastöðum.
Þessi eign er öll á einni hæð og er með 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi ásamt stórum þaksvölum, einkasundlaug og bílastæði inni á lóð. Opiðer frá eldhúsi til stofu og borðstofu og frá stofunni er gengið út á verönd. Öll svefnherbergin eru rúmgóð og eru með innbyggða fataskápa nema master svítan er með fataherbergi og einkabaðherbergi.
Í húsinu er innbyggt loftkælingar og hitakerfi. Innifalið í verði eru öll húsgögn.