Markaðsvirði eignar
Kr33.800.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Flott raðhús í Alicante við golfvöllinn Alenda Golf. Raðhúsin eru staðsett í flottu hverfi sem byggist hratt upp og er umkringt allri þjónustu. Aðeins 15 mín akstur á ströndina og 10 mín að keyra í miðbæ Alicante.
Eignirnar er á þremur hæðum og hefa þrjú svefnherbergi, þrjú baðherbergi og stórar 50 m2 þaksvalir. Á jarðhæð er flott eldhús opið til stofu og borðstofu sem hefur aðgengi út á einkaverönd. Einnig er þvottahús og baðherbergi á jarðhæð. Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi, þar á meðal ein hjónasvíta með sér baðherbergi og svalir.
Í garðinum er stór sameiginleg sundlaug og allar eignir hafa sér bílastæði. Einnig er hægt að bæta við kjallara.
Það eru aðeins 4 eignir eftir í þessum kjarna.
Verð frá 220.000€. - 228.000€.
Tilbúnar til afhendingar í mars 2023
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is