Markaðsvirði eignar
Kr13.100.000 13.1Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
2 svefnherbergja íbúð á 3. hæð í snyrtilegu lyftuhúsi. Bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir með eigninni.
Íbúðin er miðsvæðis í Torrevieja og stutt er í alla þjónustu. Íbúðin er snyrtileg og nýlega máluð.
Í sameiginlegu rými er sundlaug og það fylgir eitt stæði í bílakjallara sem er mikill bónus.
Um er að ræða íbúð með 2. svefnherbergjum, 1. baðherbergi, stofu og svölum og rými út frá eldhúsi þar sem pláss er fyrir þvottavél ofl. Öll húsgögn fylgja með sem eru á myndum.
Verð 90.000 evrur.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 558-5858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Torrevieja er borg í austurhluta Alicante-héraðs Spánar, á Costa Blanca. Borgin er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag sitt og strandlengju. Göngugötur liggja meðfram fögrum sandströndum. Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem brosir ætíð mót hafinu, borg sem er rík af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllu sem vilja njóta lífstílsins við Miðjarðarhafið. Inni í landinu er Lagunas de la Mata-Torrevieja náttúrugarðurinn með skemmtilegum gönguleiðum og tveimur saltvötnum, annað bleikt og hitt grænt. Staðsetning Torrevieja á Íberíuskaganum þýðir að þar er meðalhiti um 18°C og meira en 300 sólskinsdagar á ári hverju. Eigendur fasteigna í Torrevieja njóta þróaðra innviða; menntastofnana, heilsugæslu, vatnagarða og verslana.