Skilmálar

Skoðunarferð til Spánar á vegum Spánarheimila er sérsniðin að þörfum viðskiptavinarins og er farin í þeim tilgangi að fá ókeypis þjónustu sérfræðinga á vegum fyrirtækisins til að skoða bæði allt það sem Costa Blanca svæðið hefur upp á að bjóða svo og þær fasteignir á svæðinu sem falla að óskum og þörfum viðskiptavinarins með kaup á draumaeigninni á Spáni í huga. Einnig fær viðskiptavinurinn allar upplýsingar um bankamál og fjármögnun fasteignakaupa á Spáni svo og aðrar mikilvægar upplýsingar er snúa að því að eiga og reka fasteign á Spáni.

 

Spánarheimili hópar aldrei mörgum saman í skoðunarferð á sama tíma heldur gefum við okkar viðskiptavin alla okkar athygli á meðan á skoðunarferðinni stendur.

 

Viðskiptavinurinn þarf að greiða uppsett skoðunarferðargjald sem ákvarðast eftir lengd skoðunarferðar en innifalið í skoðunarferðargjaldinu er beint flug fram og til baka frá Íslandi til Alicante á Spáni. Spánarheimili sér um að bóka flugið á þeim tíma sem sammælst er um að henti bæði viðskiptavininum og starfsmanni Spánarheimila sem verður viðskiptavininum til aðstoðar á meðan á skoðunarferðinni stendur. Innifalið í flugmiðanum er handfarangur (flugfreyjutaska) en ef viðskipstavinur óskar eftir því að bóka innritaða farangurstösku í flugið þarf að greiða sérstaklega fyrir það.

 

Innifalið í skoðunarferðargjaldinu er og gisting fyrir allt að 2 annað hvort sem er á 4ra stjörnu hóteli með morgunmat sbr http://www.lomasdecampoamor.es/en/accommodation eða í íbúð eða húsi eins sambærileg eign og á svipuðum stað og viðskiptavinurinn leitar eftir til kaups. Ef með í för með viðskiptavininum eru vinir eða fjölskyldimeðlimir eru þeim velkomið að gista í eigninni án viðbótarkostnaðar en greiða þarf fyrir flugfargjaldið sérstaklega. Viðskiptavininum er einnig heimilt að lengja í ferðinni og dvelja lengur í viðkomandi eign en þarf þá að greiða gistikostnaðinn sem nemur þeim dagafjölda sem hann dvelur í eigninni eftir að formlegri skoðunarferð líkur.

 

Ef af kaupum verður á meðan á skoðunarferðinni stendur eða eftir að heim er komið að aflokinni skoðunarferð fær viðskiptavinurinn skoðunarferðargjaldið fyrir allt að tvo endurgreitt þegar undirritun afsals og afhending á eigninni fer fram.

 

Engar skuldbindingar er á viðskiptavininum að festa sér kaup á fasteign á Spáni á meðan á skoðunarferðinni stendur en ætlast er til þess að viðskiptavinurinn fylgi eftir þeirri dagskrá sem starfsmaður Spánarheimila leggur upp með á meðan á skoðunarferðinni stendur.

 

Ef viðskiptavinur misnotar auðsjánlega skoðunarferðarrúrræðið með þeim hætti að vera engan veginn tilbúinn að fylgja eftir dagskrá skoðunarferðarinnar eða gefur það skýrt í ljós að hann sé ekki að fara að fjárfesta í fasteign á Spáni þá áskilur Spánarheimili að slíta skoðunarferðinni þá þegar á meðan á henni stendur og leggja fram fyrir viðskiptavininn reikning sem nemur bæði útlögðum kostnaði og ráðgjöf starfsmanns Spánarheimila.

 

Spánarheimili býður einnig viðskiptavini sem dvelur á Spáni á eigin vegum að fá skoðunarferð á vegum Spánarheimila og ákvarðast dagskráin í samráði við viðskiptavininn.