{{locationDetails}}
{{locationDetails}}
Starfsmaður okkar bíður á flugvellinum við komuna til Spánar og ferjar ykkur beint í leigueign þar sem hann sýnir og kennir á eignina. Við brottför frá Spáni er skutl beint á flugvöllinn frá leigueign.
Bjóðum okkar leigjendum upp á létt þrif á leigueign á meðan á dvöl stendur. Við þrífum þá alla eignina að innan en ekki lín og annan þvott. Einnig bjóðum við upp á alþrif þar sem öll eignin er þrifin að innan svo og allt lín og handklæði. Einnig er útiverandi við eignina þrifnar svo og útigrill.
Costablanca-svæðið er sannkölluð paradís kylfingsins en á bæði norður- og suðursvæðinu má finna rúmlega 30 golfvelli. Þeirra á meðal eru bestu golfvellir Spánar, vellir sem hafa hlotið alþjóðlegar viðurkenningar sem slíkir á undanförnum árum.
Við erum með deilibíla í boði í gegnum vefsíðuna spanarbilar.is og það er mun hagkvæmari kostur en að leigja bílaleigubíl. Þú færð bílinn afhentan við leigueign.
Við bjjóðum upp á framúrskarandi þjónustu á ýmsum sviðum sem byggist á góðri staðarþekkinu og áralangri reynslu okkar úr spænsku ferða- og viðskiptaumhverfi.
Ef spánardvöl vekur áhuga leigjanda að kanna frekar möguleikana á að fjárfesta í eign á Spáni þá er möguleiki að fá skoðunarrúnt með sölumanni þar sem bæði svæðið og eignir eru skoðaðar. Fyrirspurnir sendist á info@spanarheimili.is eða í síma 5-585858