Spánarheimili kynnir : Stórglæsilegt einbýli á tveimur hæðum með þremur svefnherbergjum og þremur baðherbergjum og einka sundlaug bílastæði inná lóðinni.
Á jarðhæðinni er stórt, fallegt opið eldhús, borðstofa og stofa. Eitt svefnherbergi og eitt baðherbergi. Úr stofu er útgengt út á stóra fallega verönd og fallegan garð, þar sem hin glæsilega sundlaug er.
Á efri hæðinni eru tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Stærra svefnherbergið er með einka baðherbergi. Upp frá þeirri hæð er svo gengið upp á þaksvalir með miklu útsýni. Foruppsetning fyrir loftkælingu er til staðar og gólfhiti inná aðalbaðherberginu.
Eignin er umkringd golfvöllum, allri þjónustu og nálægt alþjóðlega skólanum "El Limonar". Aðeins 10 mín frá La Zenia Boulevard og bestu strendum af suður Costa Blanca svæðinu.
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður
með frábæru útsýni, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.