Spánarheimili kynnir:
Í þessum glænýja, glæsilega og uppselda kjarna var að koma ein penthouse íbúð í sölu. Um er að ræða nýja eign sem aldrei hefur verið búið í.
Staðsetningin á þessum kjarna er frábær, staðsett á rólegum stað í "kryddhverfinu" í Villamartín. Öll þjónusta í göngufæri og örstutt td. í Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina. Íbúðakjarninn samanstendur af þremur fjölbýlishúsum með fallegum sameiginlegum, aflokuðum garði með sundlaug og grænum svæðum.
Íbúðin sjálf er með 2. svefnherbergi og 2. baðherbergi, opið rými sem er stofa og eldhús, lítið þvottahús inn af eldhúsi og svo eru svalir sem snúa í suður ásamt frábærum þaksvölum með útsýni yfir Miðjarahafið. Eldhústæki fylgja eigninni (helluborð, ofn, ísskápur, örbylgjuofn og hitatúpa).
Bílastæði og lokuð geymsla í bílakjallara fylgir eigninni.
Hér er einstakt tækifæri á að eignast glæsilega penthouse íbúð á eftirsóttum stað og hún er til afhendingar strax !
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.