Spánarheimili kynnir:
Gott einbýlishús með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum staðsett á rólegu og eftirsóttu svæði Los Balcones.
Staðsetningin er góð, stutt frá td. sjúkrahúsinu í Torrevieja og flestri almennri þjónustu sem þú þarft fyrir daglegt amstur.
Eignin er fullbúin húsgögnum og tilbúin til að flytja inn. Lóðin er um 450 m2 og er 8x4 metra sundlaug í garðinum.
Ekki missa af tækifærinu til að búa á stað sem sameinar þægindi, ró og nálægð við alla þjónustu. Hafðu samband við okkur í dag fyrir frekari upplýsingar og til að skipuleggja heimsókn!
Nánar um svæðið:
Torrevieja er borg í austurhluta Alicante-héraðs Spánar, á Costa Blanca. Borgin er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag sitt og strandlengju. Göngugötur liggja meðfram fögrum sandströndum. Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem brosir ætíð mót hafinu, borg sem er rík af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllu sem vilja njóta lífstílsins við Miðjarðarhafið. Inni í landinu er Lagunas de la Mata-Torrevieja náttúrugarðurinn með skemmtilegum gönguleiðum og tveimur saltvötnum, annað bleikt og hitt grænt. Staðsetning Torrevieja á Íberíuskaganum þýðir að þar er meðalhiti um 18°C og meira en 300 sólskinsdagar á ári hverju. Eigendur fasteigna í Torrevieja njóta þróaðra innviða; menntastofnana, heilsugæslu, vatnagarða og verslana.