Spánarheimili kynnir:
Villacosta club II er kjarni einungis 12 einbýla / parhúsa með 2. eða 3. svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Verönd/garður eru bæði fyrir framan og aftan húsið, einkasundlaug og bílastæði innifalið í verði. Ýmsir auka möguleikar t.d á útieldhúsi.
Kjarninn er staðsettur ofarlega við "bankabrekkuna", rétt við Camoamor, Las Ramblas og Villamartín golfvellina og aðeins í 5 mín. akstursfjarlægð frá bestu ströndum Orihuela Costa. Sérstaklega góð staðsetning til að njóta sólarinnar og lífsins á Spáni.
Í nokkurra mínútna göngufjarlægð finnur þú alls kyns þjónustu eins og bari, veitingastaði og verslanir, svo ekki sé minnst á "La Fuente" verslunarmiðstöðina. Ný Mercadona verslun er að auki í göngufjarlægð.
Til afhendingar mitt ár 2025.
Verð frá 354.000 til 359.000 evrum.
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.
Upplýsingar í síma 558-585