Spánarheimili kynnir: Sunrise 10, spennandi kjarni í byggingu í Villamartin. Þetta munu verða 8 blokkir samtals og íbúðir verða tilbúnar til afhendingu í júlí 2024. Stutt er í flesta þjónustu og aðeins nokkrar mínútur í matvörubúð og á næstu veitingastaði. Einnig eru aðeins um 8 mínútur í stóru verslunarmiðstöðina Zenia Boulevard.
Um er að ræða íbúðir á jarðhæðum með einkagarði og svo á miðhæð með svölum.
Hver íbúð er með 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi ásamt glæsilegu eldhúsi sem er opið til stofu og borðstofu. Frá stofu er gengið út á svalir sem eru með útsýni yfir sameiginlegan garð þar sem er stór sundlaug sem eigendur hafa aðgang að. Það fylgir með stæði í bílakjallara og geymsla inn af stæði og svo er spa aðstaða, líkamsrækt, barnaleiksvæði, heilsulind með nuddpottum og margt fleira.
Bæði svefnherbergin eru með innbyggða fataskápa og annað herbergið er svíta og er því með einkabaðherbergi.
Verð frá 259.000€ upp í 299.000€
Þeir sem festa sér draumaeignina með 10.000€ staðfestingargjaldi fá allt innifalið sbr.: aircon, lýsingarpakka, húsgagnapakka, rafmagnstæki (ísskápur, þvottavél, sjónvarp osfv.), eldhúsbúnað, bílastæði og geymslupláss.
Tilbúið til afhendingar 2025
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is