Spánarheimili kynnir: Skemmtilegar sérhæðir í nýbyggðum kjarna við La Finca Golfvöllinn. Stutt er í alla þjónustu, hvort sem það er gangandi eða akandi yfir í næsta bæ, Algorfa. Á La Finca svæðinu eru 2 kjarnar þar sem að þú finnur verslanir, hraðbanka, úrval af kaffihúsum og veitingastöðum og aðra þjónustu. La Finca svæðið er þekkt fyrir glæsilegan golfvöll, eitt glæsilegasta klúbbhús Costa Blanca og frábæra aðstöðu fyrir hverskonar útivist. Á svæðinu er 5 stjörnu hótel, spa og heilsulind. Hver íbúð er með 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi, flotta verönd bæði að framan og aftan ásamt einkagarði. Eldhúsið er stórt og flott og er opið til stofu og borðstofu en frá stofu er gengið út á veröndina. Svefnherbergin eru flott og rúmgóð og eru bæði með innbyggða fataskápa en annað herbergið er master svíta og er því líka með einkabaðherbergi. Einnig er sameiginleg sundlaug í kjarnanum sem eigendur hafa aðgang að. Verð frá 275.000€. Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is